Fréttir Lífið í bænum
Gott að eldast - Opinn fundur á Höfðaborg
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi boða til opins fundar í verkefninu Gott að eldast. Á fundinum verða kynntar niðurstöður nýrrar könnunar um virkni, þátttöku og líðan íbúa eldri en 80 ára í Stykkishólmi. Niðurstöður varpa ljósi á stöðu og upplifun hópsins og skapa mikilvægan grunn fyrir áframhaldandi þróun þjónustu. Fundurinn er opinn öllum áhugasömum og er kjörið tækifæri til að fræðast, ræða málin og taka þátt í samtali um það hvernig við getum best stutt við gott líf á
efri árum.
17.04.2026